Verkefnaþróun í 11 skrefum

Þróun vindorkuvirkjana felur í sér allt ferlið frá fyrstu hugmynd að framkvæmd og gangsetningu vindtúrbína. wpd stýrir verkefnum í gegnum alla þessa fasa – með ábyrgð og heildrænni nálgun. Öll nauðsynleg tæknisvið til árangursríkrar uppbyggingar vindorkuvirkjana eru sameinuð undir einu þaki hjá wpd.

Uppbygging á vindorkuvirkjun wpd

Við val á staðsetningu vindorkuvirkjana þarf að meta hvaða svæði eru hæf og gerum við það út frá eftirfarandi forsendum:

  • Greiningu vindskilyrða
  • Landslagi
  • Umhverfisáhrifum
  • Takmörkunum eins og t.d. fjarlægð frá þéttbýli, íbúðarhúsum eða friðunarsvæðum, takmörkunum vegna flugumferðar o.fl.
  • Skipulagslögum

 
Niðurstaða mats á staðsetningu er forsenda þess hvort vindorkuvirkjun sé fýsileg út frá tæknilegum forsendum, umhverfisáhrifum og skipulagslögum.

Tvær meginkröfur verður að uppfylla fyrir skipulagningu og framkvæmd vindorkuvirkjana:

  • Almennings grundvöllur – samningur við landeigendur um aðgengi að landi
  • Grundvöllur stjórnvalda og skipulags – Vindorkuvirkjun sett í nýtingarflokk rammaáætlunar og framkvæmdarsvæði skilgreint sem iðnaðarsvæði í aðalskipulagi sveitarfélags

 
Þegar hugmyndir og óskir landeiganda eru einstaklingsbundnar semja verkefnastjórar okkar sérstaklega við hvern landeiganda um aðgang að landi.

Eftir að vindorkuvirkjun er sett í nýtingarflokk rammaáætlunar, aðlagar sveitarfélag skipulag sitt með tilliti til framkvæmdarinnar. Í því ferli er tæknideild okkar tilbúin til að veita víðtækan stuðning í þróunar- og framkvæmdarferlinu ásamt aðlögun skipulagsáætlana.

Sem hluti af leyfisferlinu mun fara fram ítarlegt mat á umhverfisáhrifum. Í því ferli vinna óháðir aðilar umhverfisrannsóknir og gera skýrslur um möguleg umhverfisáhrif framkvæmdarinnar.

Unnin er lokaskýrsla um mat á umhverfisáhrifum og hafið umsagnarferli við almenning og sérfræðistofnanir ásamt því að umhverfismatsskýrsla er kynnt á opnum kynningarfundi. Að samráðsferli loknu gefur HMS út álit sitt á umhverfismatsskýrslunni.

Þegar frummat á vindskilyrðum liggur fyrir fer wpd í nákvæma gagnaöflun til að ákvarða möguleika vindsins sem og mögulega orkuvinnslugetu, en það er gert með vindmælingum sem framkvæmdar eru á svæðinu. Ef það eru nú þegar vindtúrbínur á svæðinu gefst tækifæri til að áætla tekjur út frá orkuvinnslu þeirra. Á seinni stigum þróunarferlisins munu gögn og skýrslur um vindskilyrði vera nýtt við fjármögnun og val á vindtúrbínum.

  • Skýrslugerð fyrir verkefnaþróun og stefnumótun verkefnisins.
  • Notkun á nýjustu mælitækni eins og Sodar búnaði og vindmælimastri
  • Útreikningur á orkuvinnslugetu
  • Undirbúningur á skýrslum um vindskilyrði sem munu leggja grunninn fyrir fjármögnun og val á vindtúrbínum á síðari stigum verkefnisins.

Eftir að hafa tryggt aðgang að landi, kannað vindskilyrði og umhverfisáhrif ásamt því að hefja aðlögun skipulags sveitarfélagsins munum við hagræða áætlun um staðsetningar og stærðir vindtúrbína með tilliti til þessara þátta. Þetta ferli gefur okkur mótaðri áætlun sem notuð er til að hefja leyfisveitingaferlið.

Þegar að undirbúningur og rannsóknir á öllum meginatriðum er lokið og ljóst er að hægt sé að framkvæma verkefnið þá hefst gerð framkvæmdaráætlun sem er nýtt við allar leyfisveitingar.

  • Sækja um breytingar á aðalskipulagi ef þess er þörf
  • Skipulagsgerð / Aðlögun deiliskipulags
  • Umsókn um virkjunarleyfi
  • Umsóknir og stuðningur við aðrar leyfisveitingar

 
Sum þessara atriða eru unnin af sérfræðideildum innan wpd, en önnur atriði eru unninn af öðrum sérfræðingum, bæði utanaðkomandi og hjá vindtúrbínu framleiðandanum. Umsóknarferlið er umfangsmikið sem krefst meðal annars tæknilegrar og lagalegrar þjónustu.

 
Öll skipulagsskref verða skoðuð út frá náttúruverndarsjónarmiðum.

  • Gerð áætlana fyrir gróðursvæði, landslagsstjórnun, umhverfisrannsóknir og samhæfispróf með tilliti til viðeigandi laga.
  • Gerðar verða rannsóknir og haft eftirlit með gróður- og dýralífi á svæðinu, eftir því sem við á, ásamt því að framkvæmd er greining á ásýnd vindorkuvirkjunar. Samhliða munu viðeigandi mótvægisaðgerðir og framkvæmd þeirra vera skipulögð, styrkt og samræmd.

Fyrir tengingu við flutningskerfið mun wpd fyrst ákvarða tæknilegar kröfur hverrar vindtúrbínu og í kjölfarið hafa samband við Landsnet. Þar á eftir fer fram viðskipta- og kerfisgreining varðandi tengingu við flutningskerfið. Fjarskiptatengingar fyrir verkefnið eru jafnframt skipulagðar og undirbúnar til að tryggja traust samskipti á milli vindorkuvirkjunar, rekstraraðila og Landsnets í framtíðinni.

Fjármáladeild wpd GmbH vinnur með bönkum sem búa yfir mikilli sérfræðiþekkingu á sviði endurnýjanlegrar orku. Markmiðið er að tryggja traustan fjárhag og eins arðbæra uppbyggingu og mögulegt er fyrir hvert vindorkuverkefni. Þetta felur til dæmis í sér arðsemisútreikninga og lausafjáráætlun; í stuttu máli þýðir það að styðja við fjármögnun vindorkuvirkjunarinnar allt fjármögnunarstigið. Almennt leggur wpd sjálft fram eigið fé og tryggir lán frá bönkunum fyrir fjármögnun vindorkuvirkjunarinnar.

  • Hagræðing sjóðsstreymis út frá verkefnissamningum sem og skatta- og afskriftahlutfalli
  • Samhæfing á áreiðanleikaferlinu
  • Samningsviðræður um lána- og veðsamninga við alþjóðlega bankana

wpd mun skipuleggja og ljúka kaupum á vindtúrbínum í nánu samráði við verktaka sem bera ábyrgð á framkvæmd verkefnisins og í góðu sambandi við stjórnvöld. Áherslan er á áreiðanleika og hagkvæmni vindtúrbína til lengri tíma litið. Af þeirri ástæðu treystir wpd eingöngu á þróaða tækni frá virtum framleiðendum. Við valið er mikilvægt að eftirfarandi atriðum sé svarað:

  • Hvaða tegund vindtúrbína passar best við tiltekna staðsetningu, er hægt að treysta á að hún sé tiltæk ásamt því að vera á viðráðanlegu verði og tryggjanleg?
  • Eru nauðsynleg mannvirki til staðar fyrir viðhald og viðgerðir eða er hægt að byggja þau upp?

wpd mun taka að sér verkefnisstjórn fyrir allt ferlið við uppbyggingu vindorkuvirkjunarinnar og samræma framkvæmdirnar með öllum sem að þeim koma.

  • Hönnun og framkvæmdarskipulag fyrir vegi, rafstrengi og undirstöður
  • Umsóknir, útboð og byggingastjórnun fyrir lagningu rafstrengja, tengivirki, vegavinnu, undirstöður og jarðvinnu
  • Byggingarstjórnun í samræmi við viðeigandi byggingarreglugerð, samhæfing vinnuverndarráðstafana og skrár yfir stöðu verksins í hverjum áfanga verkefnisins
  • Samræming á samstarfi rafveitu og fjarskiptafyrirtækja
  • Viðvarandi eftirlit með tíma- og fjárhagsáætlunum, kostnaðarmati og – útreikningum, staðfesting á hagkvæmni uppröðunar vindtúrbína og vega á svæðinu
  • Leyfi vegna innviða og yfirferð á fyrirliggjandi skjölum
  • Afhending verkefnis til rekstraraðila

Það er sýn wpd að þróun á mótvægisaðgerðum sé mikilvægt atriði þegar kemur að velgengni verkefna, bæði þegar kemur að kröfum sem gerðar eru í leyfisveitingaferlinu, sem og samþykki nærsamfélags. wpd hefur haldið úti sinni eigin landslagsskipulagsdeild í fjölda ára til að tryggja að allar mótvægisaðgerðir komi frá sama aðila. Með þeim hætti getum við tryggt alhliða og sjálfbæra áætlanagerð frá þróun verkefnisins til leyfisveitinga.

Landslagsskipuleggjendur okkar styðja verkefni að jafnaði yfir fimm til sex ára tímabil: Frá fyrsta náttúruverndarmati á hugsanlegu svæði, í gegnum skýrslugerð, leyfisveitingar, skipulag og framkvæmdir mótvægisaðgerða. Meðan á frekari rekstri stendur munu allar mótvægisaðgerðir vera framkvæmdar af wpd windmanager.