Brekknaheiði

Um verkefnið

  • Fyrirhuguð staðsetning vindorkuvers er á Brekknaheiði í Langsnesbyggð.
  • Samvinnuverkefni okkar með EFLU og Sveitarfélaginu í Langanesbyggð að kanna fýsileika vindorku á Brekknaheiðinni.
  • Vindmælingar hafa verið í gangi síðan í október 2022.
  • Gert er ráð fyrir að vindorkuverið muni samanstanda af 47 vindmyllum, hver verði að hámarki 7,2 MW og 210m hámarkshæð. Samanlagt er ráðgert að uppsett afl verði að hámarki 338,4 MW.
  • Virkjunarkosturinn hefur verið nefndur Brekknaheiði og var sendur inn til verkefnastjórnar Rammaáætlunar 2020. Ath. Kennistærðir í rammaáætlun sýna alltaf alger hámörk virkjanakosta 

Upplýsingar um verkefnið

Fjöldi vindmylla: Allt að 47
Tegund: Vindorkuver
Hæð með spaða í efstu stöðu: Allt að 210 m
Afl hverrar vindmyllu: Allt að 7,2 MW
Uppsett heildarafl: Allt að 338 MW
Orkuvinnslugeta: 1364 GWh/ári
Staðsetning: Langanesbyggð